Leiðbeiningar og myndband

Maskinn kemur óblandaður í duftformi og virkjast með því að blanda vatni saman við hann. Mikilvægt er að nota ekki of mikið vatn en ef að maður setur of mikið vatn þá má bíða í nokkrar mínútur á meðan maskinn þykkist, best er að hafa maskann vel þykkann áður en hann er borinn á andlit. Þegar maskinn er borinn á andlit myndast kælandi gelgríma á 10-20 mín, en það eru góðar leiðbeiningar á íslensku og ensku á pakkningunni. Maskinn má fara yfir allt andlitið, þar á meðal augun, og situr ekki fastur í hárum heldur flettist vel af.

Ljósbleiki maskinn, It´s time to glow, hentar vel fyrir unga húð og gefur góðan raka. Dökkbleiki maskinn, It‘s time to party, hentar fyrir 20 ára og eldri en hann jafnar húðlit, gefur góðan raka og er bólgueyðandi. Appelsínuguli maskinn, It´s time to shine, er frábær fyrir 30 ára og eldri en hann dregur úr fínum línum, stinnir húðina og lokar opnum húðholum.